.

Græna húsið Lyrics

Lygin grær í grænu húsi
gömul leyndarmál vaka um nætur.
Hatrið leynist í kaldri kompu
Þar býr sorgin og festi rætur.
Hún óx og varð að stórum garði
með grátandi svörtum greinum.
Þar sem kettir klóra og hvæsa
þar sem bleikir snákar eru í leynum.
Í garðinum bjó skuggi skugga.
skreið þar um langur og mjór
Hann læsti klónum í litla selpu.
Ljótur kaldur slímugur og stór

Engill berðu mig upp til skýja
er skugginn skreið uppí rúmið.
Ó engill, engill, hvert á ég að flýja.

Lygin grær í grænu húsi.
Gömul leyndarmál vaka um nætur.
Með frostrósir í hjarta hólfi.
býr sorgin og húsið grætur.
Report lyrics