.

Fótatak þitt Lyrics

Það kom eins og ljósið
læddist bara inn.
Fullt af hvítri gleði
Gæfan og draumurinn.
Tær og bjartur morgunn.
Bros þitt undur blítt.
Opin augu friðsæl
upplifa allt sem nýtt.

Lífið er stóra undrið.
Gleðin að gleðja þig.
Óska öllum friðar.
Sáttur við sjálfan sig.
Orðin skipta máli.
Dagurinn kemur og fer.
Þinn tími óráðin gáta
líkt og tími minn með þérl

Látum því aldrei hjá líða
að leggja í hjartað inn
fallegt orð að kveldi
ástin mín, vinur minn.
Report lyrics