.

Þegar tíminn er liðinn Lyrics

Ég er búinn að vera hér í átján ár.
Allt hefur sitt upphaf og endi.
Dýrmætt er lífið og litur augnanna var blár .
Í dauðann manninn ég sendi.
Fyrstu þrjú árin gerðist ekki neitt.
Ég lokaði mig dofinn bara inni.
Tíminn hann leið ekki, ég gat engu breytt
og ég veit að dauðinn hefur fullkomið minni.

Á morgun, á morgun opna þeir upp á gátt.
Opna drauma, stóru hliðin.
Ég er hræddur við lífið, í hvaða helvítis átt.
gengur maður þegar tíminn hér er liðinn .

Steypa hellur og lyfta lóðum er jú
það sem menn hér inni eru að gera.
Og vaka um nætur hvísla ástin hvar ert þú
Harka af sér og bryðja stera.
Aldrei sýna ótta, ávallt vera kúl.
Alveg sama á hverju sem gengur.
Þó ginið sé opið og lyktin úr því fúl
skaltu muna þú ert ekki lítill lengur.

Á morgun, á morgun opna upp á gátt
Opna frelsis grænu hliðin.
Ég er hræddur, ó segðu mér í hvaða átt
gengur maður þegar tíminn hér er liðinn.
Ég hef séð menn koma kolaða inn
eftir keyrslu dauðans á femma.
Stöff sem dræpi ljón ef það tæki það inn
Ég hef séð dauðann í klefa lífið hremma.

Öll árin hef ég óttast óttast það eitt
að koma út í heim sem ég þekki ekki.
Ég er fullur af sekt og ég get engu breytt
Hver dagur færir mér nýja hlekki.

Í dag, í dag opna þeir upp á gátt.
Opna Litla Hrauns hliðin.
Hvert á ég að fara, í hvaða helvítis átt
nú þegar tíminn hér inni er liðinn.
Report lyrics