.

Brúnu augun þín Lyrics

Við enda gangsins er ljós
sem enginn virðist sjá.
Í vasa við lyftuna er rós
og sófi sem tekur þrjá.
Fólkið kemur og fer
og ég veit ástin mín
hvers ég sakna í heimi hér
brúnu augun þín.
Þjónninn með sitt þreytta fas
á þeytingi milli borða.
Fólk gleypir kjöt eða gras.
Öll samskipti eru án orða.
Það er komið að mér
fylla glösin fín.
Þau kalla á mig líka hér
brúnu augun þín.
Kvöldið kyrrlátt og heitt.
Stórborgarysinn hann rís.
Klukkan er korter í eitt.
Það er kallað taxi, plís.
Ljósin lýsa svo skær.
Menn hlæja og gera grín.
En ég þrái bara að vera þér nær
horfa í brúnu augun þín.
Report lyrics