.

Þú ert ekki staur Lyrics

Þegar sólin kveður daginn
og hleypir kvöldinu inn.
Þinn himinn án alls ljóma
kyssir þína bleiku kinn.
Þú átt allt nema heiður og sóma.
Þú ert ekki staur
þú átt aur
en þú þværð ekki af þér skítinn.

Þegar sólin kveður nóttina
hleypir deginum inn.
Ljós þitt er án allrar birtu.
Kaldar varir snerta þína kinn.
Þú vaknar í blautri skyrtu.
Hvað verður um þinn aur
verður þú staur
hver mun þrífa af þér skítinn?

Þegar sólin kveður augun
öfundin brýst inn.
Hirðir allt sem hjarta þitt þráði.
Dauðinn er þá eini vinur þinn
sá eini með réttu ráði.
Þá verður þú staur
alveg staur
og engill Guðs mun þvo af þér skítinn.
Report lyrics