.

Myndbrot Lyrics

Þar sem auðnin og sandurinn þekur allt
Þar sem sólin skín en samt er þar kalt
Þar sem jökullinn hörfar hvern einasta dag
heyrði ég sungið svo fallegt lag
Það var engill sem sat á svörtum stein
og röddin var s*****ört tær og hrein
Ég vil þig ég vil þig ekki
Ég vil þig ég vil þig ekki
Ég sat og ég hlustaði um stund.

Þar sem brimaldan flæðir upp á land
Þar sem æska þín er grafin í sand
Þar sem strákar og stelpur fóru í slag
heyrði ég sungið svo fallegt lag
Það var engill í rólu að róla sér
og röddin ljúfa settist í hjarta mér
Ég vil þig ég vil þig ekki
Ég vil þig ég vil þig ekki
Og ég sat og ég hlustaði um stund.
Þar sem fortíð og framtíð mætast nú
Og hið f**ra og ljóta byggja þar brú
yfir óttan þar sem er dagurinn þinn
Heyrði ég aftur fallega sönginn
Það var engill sem sat uppi í grænni hlíð
og röddin var svo mjúk heit og blíð
Ég vil þig ég vil þig ekki
Ég vil þig ég vil þig ekki
Og ég sat og hlustaði um stund.
Þar sem dauðinn og lífið leika hvern dag
leggja allt undir fyrir hvern einasta slag
Þar sem óskir þínar fljúga svo hátt
Heyrði ég sungið svo dapurt og lágt
Það var engill sem átti þennan bláa söng
og röddin minnti mig á kvöldin löng
Ég vil þig ég vil þig ekki
Ég vil þig ég vil þig ekki
Og ég sat og ég hlustaði um stund.
Ég vil þig ég vil þig ekki
Ég vil þig ég vil þig ekki
Og ég sat og ég hlustaði um stund.
Ég vil þig ég vil þig ekki
Report lyrics