.

Ég ímeilaðig Lyrics

ég vil aldrei, aldrei aftur heimsækja þig.
og ég vil aldrei aftur að þú heimsækir mig.
því nú loksins, loksins á ég vin sem skilur mig.
og ég vil aldrei, aldrei aftur snerta þig.
og ef þú vilt nálgast mig,
með eitthvað sem angrar þig,
sendu mér brostið hjarta í gegnum internetið.

og hver sem þú nú ert
þá erum við öll tengd hér sterkum tengslum,
og ég ímeila þig og ég segi þér allt,
sem ég vil án þess að svipur minn segi þér satt.

og vil aldrei, aldrei aftur yrða á þig.
og vil aldrei aftur að þú yrðir á mig.
ég vil aldrei aftur þurfa að horfa til þín.
og vil aldrei aftur að þú horfir til mín.
og ef þú villt nálgast mig,
með eitthvað sem angrar þig,
sendu mér brostið hjarta í gegnum internetið.

og hver sem þú nú ert
þá erum við öll tengd hér sterkum tengslum,
og ég ímeila þig og ég segi þér allt,
sem ég vil án þess að svipur minn segi þér satt.
og nú hef ég allt sem ég vil,
allar helstu þyrnirósir allsberar.
og nú geri ég allt sem ég vil,
ég horfi á uppskurð í beinni á meðan ég leik við mig.

og hver sem þú nú ert
þá erum við öll tengd hér sterkum tengslum,
og ég ímeila þig og ég segi þér allt,
sem ég vil án þess að svipur minn segi þér satt.
Report lyrics