.

Hunang Lyrics

Andlega hliðin þyrnum stráð
á rósabeði
Holdlega hliðin hjúpað vax
hýsir líf hýsir gleði
Ávala hylki
gula hús
heimili hundrað þúsund þegna
vaxandi hunang fyllir bú

Býkúpudrottning - flögrandi
suðar í mér
Hunang býflugnanna - flæðandi
fyllir mín ker
Býflugubroddur - ögrandi
býður mér fár
Hunang býkúpunnar - græðandi
hylur mín sár
s**hyrndu hólfin yfirfull
Virðist sem vetrarforðinn hrökkvi
Fljótandi hunang flæðir út
Býkúpudrottning - flögrandi
suðar í mér
Hunang býflugnanna - flæðandi
fyllir mín ker
Býflugubroddur - ögrandi
býður mér fár
Hunang býkúpunnar - græðandi
hylur mín sár

Sál virðist ofurseld
seiðmagni hunangs
Report lyrics
Hunang (1993)
Mjallhvít Undirheimar Neptúnus Kvikindi Hunang Grjót Sviti Ljósaskipti Hamingja Foss