.

Við eigum samleið Lyrics

Ég vildi að við gætum gefið

hvort öðru sanna ást
af öllu hjarta fyrirgefið

allt sem áður brást.

Beint sjón okkar að framtíð

og möguleikum hér

hætt að harma fortíð

sem er liðin hvort eð er.

Því að við eigum samleið í tíma og rúmi
erum ferðalangar hér á jörð

sem stjörnublik, í næturhúmi

tvö í sundurleitri hjörð

ég vildi að við ættum sanna ást.

Á milli okkar er strengur
sterkari en stál

á meðan þú við hlið mér gengur

ríkir gleði í minni sál.

Ég vildi að við gætum gefið

hvort öðru sanna ást

af öllu hjarta fyrirgefið

allt sem áður brást.
Report lyrics
Top Stjórnin Lyrics