.

Sem Kóngur Ríkti Hann Lyrics

Ar-ídú-ar-ídú-radei,
Ar-ídú ar-ídáa.
Sem kóngur ríkti hann meður sóma og sann
eitt sumar á landinu blaaáa.
Sögu við ætlum að segja í kvöld
um sæfarann Jörund hinn knáa.
Sem kóngur ríkti hann meður sóma og sann
eitt sumar á landinu blaaáa.
Í Danmörk fæddist og ólst hann upp,
en engan hlaut hann þar frama.
Sú kotungaþjóð með sín kúastóð
og kokhljóð var honum til aaama.
Á briggskipi ungur til Englands hann hélt,
og ölduna f**nandi steig hann,
því þrek í honum bjó og í saltan sjó
af sérstakri ánægju meeeig hann.
Á kuggana marga hann munstraði sig
og mörg urðu hans ævintýri.
Hann kunni bráðum á allt sem kunna þarf á:
kompás, segl og stýýýri.
Og loks varð hann kapteinn með korða og hatt
á kaupfari glæstu og nýju.
Um höfin stór og breið nú lá hans leið
frá London til Ástrallalíííu.
Já fjöldamargt vann hann til frægðar sér,
en frægust varð Jörundar saga,
er hann komst á norðurslóð í kynni við þjóð
sem þar kúrði með galtóma maaaga.
Report lyrics
Jameson (2011)
Jameson Riggarobb Hæ hoppsa-sí Híf opp æpti karlinn Þjóðsaga Hey hey hey Söngurinn hennar Siggu Rabbits Syngjandi hér, syngjandi þar Sem kóngur ríkti hann Hríseyjar Marta Kútter Sigurfari Bíum bíum bambaló Devil Went Down to Georgia Kirkjubæjarklaustur Dirty Old Town Við höldum til hafs á ný Langi Mangi Svanga Mangason Brúðkaup Villa kokks Sálarflækja Í húsi málarans/Ofviðrið Ást í loftinu Lífið er lotterí Efemía Vorvísa Metta mittisnetta Ég hvísla yfir hafið Og þá stundi Mundi Móðurminning
Top Papar Lyrics