.

Mescalin Lyrics

Jafnvel þótt himininn dragi gluggatjöld sín frá,
liggur dáleiðandi þokan glugga þínum á.
Himininn brotnar í ljóðum, nakið undur,
kristaldýr í garðinum molnar sundur.
Hálfluktum augum starði ég inn,
rafmagnað ljósið strauk mína kinn.
Hvíslandi þögnin reis úr dvalanum í gær,
bergmál vorsins í garðinum hennar grær.

Á heitum kvöldum hún kallar mig sinn vin,
með augu eins og demanta, sem lýsa upp himininn.
Hún dansar fram á nætur í tunglsjósinu, tryllt,
gulli roðið hár hennar þyrlast úfið, villt. O-o-o-o-ó-ó
Garðinn hennar vöktuðu s** japanskir vígamenn,
sem aldrei fóru af verðinum, nema einn og einn í senn.
Ef þú vilt hana gleðja skaltu senda á morgun blóm,
hún hefur stærra hjarta, dýpri augu, en páfinn í Róm.

Jafnvel þótt himininn dragi gluggatjöl sín frá,
mun dáleiðandi þokan liggja glugga þínum á.
Augu þín sljóvga líkt og þú rýnir í svartan hyl,
milli þín og drauma hennar liggur fingurbreytt bil. O-o-o-o-ó-ó
Report lyrics