.

Litli tónlistarmaðurinn Lyrics

Mamma - ertu vakandi mamma mín?
mamma - ég vil koma til þín
ó mamma - gaman væri að vera stór
þá vildi ég stjórna - bæði hljómsveit og kór
Mamma - þú ert elskuleg, mamma mín
mér finnst - gott að koma til þín
ó en mamma - áðan dreymdi mig draum um þig
en datt þá framúr - og það trufladi mig

Þú varst drottning í hárri höll
hljómsveitin álfar, menn og tröll
lék þér og söng í senn
þú varst svo stórfengleg
Tröllin þau börðu á b**burnar
blómálfar léku á flauturnar
fiðlurnar, mennskir menn
á mandólín, ég

Mamma

Allir mændum við upp til þín
eins og blóm þegar sólin skín
er þínum faðmi frá
gjafir flugu um allt
Flestum gekk vel að gripa sitt
glaður náði ég fljótt í mitt
en stóll er steig ég á
stóð tæpt, svo hann valt

Ó mamma - þú ert elskuleg mamma mín
mér - finnst gott að koma til þín
ó mamma - gaman væri að vera stór
þá vildi ég stjórna bæði hljómsveit og kór
Report lyrics