.

Allsherjargoðinn kvaddur Lyrics

Lýður lúti ljóð skal kveða
ráðvald ramman með rími kveðja
guðstrú gamla úr götu reisti
deildi dróttum dýrum arfi.
Fregnir flutti fornra sagna
hugsun helgra Hávamála
dvergur dáður í drætti kvæða
vinur Vakurs og vopnabróðir.

Læti ljúfri ljóðin flutti
blítt sem blærinn bylgjar engið
dagfars dyggðadrengur gætti
vinur vina þá veðrin stærði.
Syrgir seggur sá er kynntist
Fjölnis frænda og fræðaþuli
f**nar fold fræknum býður
náttstað nánum notalegan
Report lyrics
Icelandic Folk Music (1996)
Íslandsklukkur Á Sprengisandi Dýravisur Ólafur Liljurós Ísland farsælda frón Íslandsljóð Tröllaslagur Tyrkjaránið Fann ég á fjalli (Óskasteinar) Sofa urtubörn Bí bí og blaka Heyr himnasmiður Allsherjargoðinn kvaddur Ó, mín flaskan fríða Völuvisa Sá ég spóa Sofðu unga ástin mín Krummavísur Íslandsvindar Lilja Maístjarnan Ísland er land þitt
Top Magnús Þór Sigmundsson Lyrics