.

Til eru fræ Lyrics

Til eru fræ sem fengu þennan dóm
Að falla í jörð en verða aldrei blóm.
Eins eru skip sem aldrei landi ná
og iðgræn lönd er sökkva í djúpin blá
og von sem hefur vængi sína misst
og varir sem að aldrei geta kysst
og elskendur sem aldrei geta mæst
og aldrei geta sumir draumar ræst.
Til eru ljóð sem lifna og deyja í senn
og lítil börn sem aldrei verða menn.
Report lyrics
Top Haukur Morthens Lyrics